Spurt og svarað um sorpmál
HVERNIG Á AÐ FLOKKA SORPIÐ?
Flokkun sorps á íslensku
Flokkun sorps á pólsku
SORPHIRÐUDAGATÖL
Sorphirðudagatal sem gildir frá júlí til desember 2016.
-----------------------------------------------------------------------
SORPMÓTTAKA VIÐ NJARÐARBRAUT
Opnunartími:
Þriðjudaga frá kl. 16:00 til 17:00 eða eftir nánari samkomulagi við starfsmann áhaldahúss í síma 863-1019
Einnig er opið á laugardögum milli kl. 11:00 til 13:00 frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.
Hvað ber að greiða fyrir:
Atvinnurekstur greiðir fyrir úrgang að undanskildum málmum/járni og úrgangsflokkum sem bera úrvinnslugjald, s.s. hjólbarða, bylgjupappa og plastumbúðir.
Almenningur greiðir ekki fyrir málma/járn eða úrgang sem getur talist falla til við daglegan heimilisrekstur en greiðir gjald vegna
- úrgangs frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis og lóða.
- úrgangs frá bifreiðaviðgerðum.
- úrgangs vegna húsdýrahalds.
Móttökugjöld fyrir einstaka farma:
Móttökugjöld verða að lágmarki kr. 500 fyrir allt að 0,25 m3 og kr. 500 fyrir hvern 0,25 m3 umfram það. Miðað er við móttöku sorps allt að 2 m3 í hvert skipti.
-------------------------------------------------
STAÐSETNING SORPGÁMA Í DREIFBÝLI SÚÐAVÍKURHREPPS:
Súðavíkurhreppur þjónustar íbúa og sumabúastaðaeigendur í dreifbýli Súðavíkurhrepps með átta sorpgámum á eftirfarandi stöðum og eru þeir þjónustaðir af Sorpsamlagi Strandabyggðar.
Staðsetning þeirra er:
Við Hvítanes í Skötufirði.
Við Ögur
Fyrir neðan Strandsel við Mjóafjörð
Við Tvísteina í Laugardal
Við Látur við Mjóafjörð
Við Djúpmannabúð í Mjóafirði
Við Vatnsfjörð
Í Reykjanesi
-------------------------------------------------
Frekari upplýsingar á heimasíðu Gámaþjónustu Vestfjarða.
-------------------------------------------------
SAGAN
- 2. Í byrjun árs 2008 tekið upp nýtt flokkunarkerfi sorps. Einnig gerðar breytingar er sneru að sorphirðudögum og meiri flokkun á sorpi en verið hafði.
- 3. Vorið 2008 hætt að taka sorp frá húsum í ytri byggðinni en komið fyrir grenndargámum við Grímsbrekku og við Höfðabrekku.
- 4. September 2010 var sorpmóttökustöð við Njarðarbraut lokað og í nóvember sama ár hafin gjaldtaka þar vegna sorps frá fyrirtækjum og stórum notendum.
- 5. Byrjun árs 2011: Fyrirtæki og stofnanir gerð ábyrg fyrir sínu sorpi og hætt að leggja sorpgjöld á fyrirtæki í Súðavík á árinu 2011.
- 6. Í lok ársins 2010 sorpbrennslustöðinni Funa lokað og byrjað að keyra öllu sorpi burt af svæðinu.