miðvikudagurinn 1. apríl 2009
Útkall vegna bruna í skipi
Slökkvilið Súðavíkur var kallað út í gærkvöldi vegna elds sem kom upp í skipi við Súðavíkurhöfn. Líklegt er að eldurinn hafi átt upptök sín við eldavél um borð í matsal skipsins. Vel gekk á ráða niðurlögum eldsins og lauk slökkvistörfum um 3 klst. eftir boðun.



