Tónlistardeild


Tónlistardeild Súðavíkurskóla 

Jóhanna Rúnarsdóttur sér um einkatíma nemenda í píanókennslu og Rúna Esradóttir sér um einkatíma í gítarkennslu ásamt tónmenntarkennslu fyrir 0. - 7. bekk. Tónlistarnemendur eru teknir út úr tímum í grunnskólanum tvisvar í viku en notuð er til þess svokölluð veltitafla sem sér til þess að nemendur séu ekki alltaf teknir út úr sömu tímunum. Þá eru einnig stakir tímar eftir hádegi.

Tónleikahald verður með hefðbundnu sniði, þ.e. samæfingar, jólatónleikar og vortónleikar.