Nýjustu myndasöfnin

Tónlístarskólinn

Jóhanna Rúnarsdóttur sér um einkatíma nemenda í píanókennslu, tónmenntarkennslu, forskóla og tónfræðikennslu og Eggert Nielsen sér um einkatíma í gítarkennslu og að vera með hljómsveitaræfingar fyrir unglingana 2 x í viku.
Tónlistarnemendur eru teknir út úr tímum í grunnskólanum tvisvar í viku en notuð er til þess svokölluð veltitafla sem sér til þess að nemendur séu ekki alltaf teknir út úr sömu tímunum. Þá eru einnig stakir tímar eftir hádegi.  Tónleikahald verður með hefðbundnu sniði, þ.e. samæfingar, jólatónleikar og vortónleikar. Þá er áætlað að vera með uppákomu á Nótunni sem er tónlistarhátíð tónlistarskóla þ.s. nemendur koma og flytja ýmiss verk.

Vefumsjón