Veitingastaðurinn, Jón Indíafari
Veitingastaðurinn Jón Indíafari er í þjónustuhúsinu Álftaveri að Grundarstræti 3.
Nafn veitingastaðarins er sótt til hins víðförla Jóns Indíafara sem fæddur var á Svarthamri við Álftarfjörð sem er skammt innan við Súðavík.
Jón Indíafari er jafnframt skemmtistaður og er barinn opin um helgar og þegar þurfa þykir. Boðið er upp á veisluþjónustu sem hentar fel við hin ýmsu tækifæri, s.s. fyrir afmælisveislur, ættarmót, eða einkasamkvæmi.
Um er að ræða veislumat eins og hann gerist bestur.
Hægt að panta heimilismat fyrir vinnuhópa og aðra sem dvelja í lengri eða skemmri tíma á staðnum.



