Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Skrá atburð
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Holtagata 23.
Holtagata 23.

Melrakkasetur Íslands ehf

Melrakkasetur Íslands ehf Er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakkanum sem er af tegundinni Vulpes lagopex og er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi.

Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. þessir aðilar eiga það sameigilegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni viðkemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu.

Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð. Að setja upp sýningu fyrir ferðamenn þar sem mun verða á boðstólnum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar. Ennfremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku.

Hvar erum við?

« 1 af 3 »

Melrakkasetur Íslands verður til húsa í Eyrardalsbænum í Súðavík, mitt á milli gömlu og nýju byggðarinnar en endurbætur á húsinu standa nú yfir. Húsið og rekstur þess er í höndum Súðavíkurhrepps en starfsemin er í höndum Melrakkaseturs Íslands ehf.


Sýningin mun opna 12. júní 2010 kl. 12.00


Frekari upplýsingar veitir Ester Rut Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri í síma 862 8219  www.melrakki.is


 

 

Fundargerdir

Meira
Vefumsjón