Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Skrá atburð
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Blómsturvellir
Blómsturvellir

Fyrirtæki

Murr ehf

Murr ehf framleiðir kattamat og hundasælgæti.   
Murr ehf er með aðsetur að Langeyrarvegi 5-7 Súðavík.
Framkvæmdastjóri félagsins er Þorleifur Ágústsson.
Verksmiðjustjóri er Vilborg Arnarsdóttir.
Vefsíða: www.murr.is
Netfang: murr@murr.is 


 Upplýsingar veitir Vilborg í síma: 893-8444

 

 

Bernskan ehf - pokabeituverksmiðja

Verksmiðja Bernskunar ehf er að Njarðarbraut 1 í Súðavík.
Fyrirtækið framleiðir pokabeitu fyrir línubáta.
Framkvæmdastjóri félagsins er Sveinbjörn Jónsson með gsm: 897 2322


Sími: 897 2322

Bifreiðaverkstæði H. Bjarnasonar

Staðsett við Njarðarbraut 20 Súðavík.
Boðið er upp á allar almennar bifreiðaviðgerðir, ásamt smur- og dekkjaþjónustu.
Helgi Bjarnason, bifvélavirkji


Opið allt árið - Sími: 456 - 4977 eða gsm: 893 - 8857


Dekurhúsið, hárgreiðslustofa

Staðsett við Holtagötu 4 Súðavík.
 
Opnunartími:
Þriðjudaga og miðvikudaga: frá kl. 13:00 til 17:00.

Fimmtudaga og föstudaga: frá kl. 10:0 til 18:00

Laugardaga - eftir samkomulagi


Pöntunarsími: 456 - 5070

Félagar ehf

Félagið býður upp á þjónustu við garðslátt fyrir einstaklinga og fyrirtæki og hefur á að skipa góðum vélum og tækjum til verksins.
Jafnframt býður félagið upp á ýmiskonar þjónustu fyrir bændur, s.s. slátt og fl.


Nánari upplýsingar veitir Yordan í síma 861 -4658


Frosti hf, Súðavík

Frosti hf, Súðavík er staðsett að Njarðarbraut 14 Súðavík.

Í húsnæðinu fer fram fjölbreytt starfsemi. Þar fer nú fram niðursuða á þorsklifur, undir merkjum HG, rekstur beituverksmiðju undir merkjum Bernskunnar ehf, og harðfiskvinnsla á vegum Vestfiskur ehf.



Sími 450 4600 - www.frosti.is

Heilsugæslusel Súðavíkur

Heilsugæsluselið er í þjónustuhúsinu Álftaveri við Grundarstræti 3 Súðavík.
Læknamóttaka er á þriðjudögum frá kl. 08:00 til kl. 12:00.

Sé þörf að læknisaðstöð utan þess tíma sem heilsugæsluselið er opið er hægt að hafa samband við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði í síma 450 4500.
Um 22 km. er frá Súðavík á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.



Þjónusta allt árið - Pantanir í síma: 456 4966 / 450 4500 - heimasíða: www.fsi.is

Jónbjörn Björnsson sf

Verkstæði Jónbjörns Björnssonar sf er staðsett við Njarðarbraut 18.
Einnig er boðið upp á þjónustu með vinnuvélum s.s. gröfu, hjólaskóflu, vörubíl, o.fl. tækjum.


Þjónustan er í boði allt árið. - Frekari upplýsingar í síma: 456-4951 eða gsm: 895 7118

Melrakkasetur Íslands ehf

Melrakkasetur Íslands ehf Er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakkanum sem er af tegundinni Vulpes lagopex og er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi.

Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. þessir aðilar eiga það sameigilegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni viðkemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu.

Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð. Að setja upp sýningu fyrir ferðamenn þar sem mun verða á boðstólnum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar. Ennfremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku.

Hvar erum við?

« 1 af 3 »

Melrakkasetur Íslands verður til húsa í Eyrardalsbænum í Súðavík, mitt á milli gömlu og nýju byggðarinnar en endurbætur á húsinu standa nú yfir. Húsið og rekstur þess er í höndum Súðavíkurhrepps en starfsemin er í höndum Melrakkaseturs Íslands ehf.


Sýningin mun opna 12. júní 2010 kl. 12.00


Frekari upplýsingar veitir Ester Rut Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri í síma 862 8219  www.melrakki.is


 

 

Samkomuhús Súðavíkur

Samkomuhúsið hefur verið nýlega tekið í gegn bæði að innan sem utan.
Við endurbæturnar var sérstaklega hugsað til þess hvernig húsið gæti hentað til útleigu til sem flestra viðburða.
Samkomuhúsið er með eldhúsi og hentar því vel fyrir samkomur t.d. ættarmót, afmælisveislur, fermingarveislur, giftingar eða til fundarhalds. Nokkrum sinnum á ári eru haldinn böll eða diskótek á félagsheimilinu og þau ætti engin að láta fram hjá sér fara.


Til leigu allt árið - Uppl. og bókanir hjá Súðavíkurhrepp í síma 450 5900

Sparisjóður Vestfirðinga

Útibú Sparisjóðs Vestfirðinga er í þjónustuhúsinu Álftaveri, að Grundarstræti 3 í Súðavík.
Sparisjóðurinn er opinn frá kl. 09:30 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 16:00 alla virka daga vikunnar.
Útibússtjóri er Steinn Kjartansson.


Opið allt árið - Sími: 450-4800 - http://www.spvf.is

Sumarbyggð hf / Isangling

« 1 af 3 »

 

Sumarbyggð hf / Isangling er ferðaþjónustufyrirtæki staðsett í Súðavík og sérhæfir sig í sjóstangveiðiferðum fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn.

 

Isangling leigir út:

 

  • - 13 sumarhús og 18 manna gistiheimili í Súðavík.
  • - 5 sumarhús á Tálknafirði.
  • - 21. sjóstangveiðibáta
  • - Sumarhús og gistiheimili á Bíldudal í samstarfi við Eagle fjord ehf.

Framkvæmdastjóri félagasins er Finnur Jónsson


Sími 844 0145 - heimasíða: - www.isangling.is

Sumarhúsaleiga -Gisting - Iceland Tour Guy

« 1 af 4 »

 

Iceland Tour Guy bíður upp á sumarhús til leigu allt frá 5 manna til 10 manna húsum.  Einbýlishúsið Aðalgata 16, Túngata 10. 15 og 17.  Sumarhúsið Hlíð í Álftafirði og svefnpokapláss og uppbúin rúm í farfuglaheimilinu Swanfjord Túngötu 13. Einnig er boðið upp á skipulaðar dags gönguferðir á Kofrann og Hest við Seyðis og Hestfjörð.

 


 Heimasíða: www.exploreiceland.ws                       Heimasíða:    www.icelandtourguy.com 


Nánari upplýsingar veita:     

Vilborg Arnarsdóttir

Upplýsingar í síma  +354-8680566

bogga@icelandtourguy.com


Nánari upplýsingar veita:     

Eggert Nielson

Sími  +1 (703) 929-5262

eggert@icelandtourguy.com


Tígur ehf.

Aðsetur Tígur ehf er að Holtagötu 25 í Súðavík.
Fyrirtækið er verktakafyrirtæki og býður upp á gröfuþjónustu o.fl.


Nánari upplýsingar í símum: 456-5902 / 864 0317 - Netfang: sigurdis@simnet.is

Veitingastaðurinn, Jón Indíafari

Veitingastaðurinn Jón Indíafari er í þjónustuhúsinu Álftaveri að Grundarstræti 3.

 

Nafn veitingastaðarins er sótt til hins víðförla Jóns Indíafara sem fæddur var á Svarthamri við Álftarfjörð sem er skammt innan við Súðavík.

 

Jón Indíafari er jafnframt skemmtistaður og er barinn opin um helgar og þegar þurfa þykir. Boðið er upp á veisluþjónustu sem hentar fel við hin ýmsu tækifæri, s.s. fyrir afmælisveislur, ættarmót, eða einkasamkvæmi.

Um er að ræða veislumat eins og hann gerist bestur.


Hægt að panta heimilismat fyrir vinnuhópa og aðra sem dvelja í lengri eða skemmri tíma á staðnum.


Opið allt árið. - Bókanir í síma 456 4981 / 654-4981  

Fyrri síða
1
2Næsta síða
Síða 1 af 2
Fundargerdir

Meira
Vefumsjón