Kynning á breytingu á skipulagi Súðavíkurhrepps.
Auglýsing
um breytingu á skipulagi Súðavíkurhrepps.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi Súðavíkurhrepps 1999-2018.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar 2012 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin er gerð vegna aukinna umsvifa Ferðaþjónustunnar í Heydal í Mjóafirði, vegna stækkunar frístunda-og skógræktarsvæða að Hlíð í Álftafirð og að Hesti í Hestfirði.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillaga að deiliskipulagi í Heydal í Mjóafirði.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar 2012 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi í Heydal skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni felst að gera ráð fyrir hótel/tómstundabyggingu, 6 gistihúsum, 2 norðurljósa-húsum, aðstöðu við laugasvæði og snyrtingu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi að Hlíð í Álftafirði.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar 2012 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi í Heydal skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni felst að stækka frístunda-og skógræktarsvæði að Hlíð í Álftafirði, fjölgun og stækkun lóða ofan þjóðvegar og þar af leiðandi breytingar á byggingarreitum, breytingar á skilmálum, fækkun og stækkun lóða neðan þjóðvegar og þar af leiðandi breytingar á byggingarreitum, ný tenging að efri hluta byggðar við þjóðveg og breytingar og nánari skilgreining á skjólbeltum ofan þjóðvegar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar ásamt greinargerðum verða til sýnis á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 1-3, Súðavík, virka dag frá kl. 10:00-12:00 og frá 13:00-15:00 frá og með 16. apríl til og með 31. maí 2012.
Einnig má sjá tillögurnar hér að neðan: Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til 31. maí 2012.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Súðavíkurhrepps Grundarstræti 1-3, 420 Súðavík.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir innan tilskilins frests, telst samþykkja tillögurnar.
SJÁ UPPDRÁTT DEILISKIPULAGS FYRIR HLÍÐ.
SJÁ UPPDRÁTT DEILISKIPULAGS FYRIR HEYDAL.
F.h. Súðavíkurhrepps
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri



