Kynning á breytingu á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps
Um er að ræða þrjár breytingar á landnotkun í Súðavíkurhreppi
1. Heydalur í Mjóafirði
Svæðið er frístundabyggð og skógræktarsvæði.
Greinargerð gildandi aðalskipulags.:
3.6.2. FRÍSTUNDABYGGÐ Í DREIFBÝLINU
Heydalur í Mjóafirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði um 334 ha.
Tillaga að breytingu
Heydalur í Mjóafirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði og verslunar- og þjónustusvæði í
þágu ferðamanna, heildarstærð svæðisins um 229 ha (stærð svæðis leiðrétt).
Í kafla 3.3.5.1. VERSLUN OG ÞJÓNUSTA, DREIFBÝLIÐ, bætist við
texti: Vegna mikils vaxtar í ferðaþjónustu á Vestfjörðum er í Heydal í Mjóafirði gert ráð fyrir verslunar- og þjónustusvæði í þágu ferðamanna. Á afmörkuðu um 10 ha svæði innan skipulagssvæðisins er áformuð um 1.500 m2 móttöku- og þjónustuaðstaða fyrir ferðafólk, þ. á.m. alhliða gistikostir, ferðaþjónusta, tjaldsvæði, frístundahús og önnur viðeigandi starfsemi sem nánar verður gerð grein fyrir í deiliskipulagi. Breytingin er í góðu samræmi við markmið sveitarstjórnar í Aðalskipulagi Súðavíkurhrepps 1999-2018 um atvinnumál, þróun byggðar og landnotkun.
Annað:
Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða hefur unnið fornleifakönnun fyrir þann hluta svæðisins sem skilgreint er fyrir verslun og þjónustu (Fornleifakönnun vegna framkvæmda í Heydal í Mjóafirði, september 2010. NV nr. 15-10) sem taka skal tillit til í deiliskipulagi svæðisins.
Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands hefur unnið staðbundið hættumat þar sem svæðið er metið undir viðmiðunarmörkum sbr. bréf stofnunarinnar dags. 9. júlí 2010 (tilv.31 SU/9640/HG).
Skipulagssvæðið tengist rotþróm. Haft skal samráð við Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða um nánari útfærslu frárennslis- og úrgangsmála svo og um öflun neysluvatns og frágang vatnsveitu.
2. Hestur í Hestfirði
Svæðið er landbúnaðarsvæði og óbyggt svæði, gert er ráð fyrir einu frístundahúsi.
Greinargerð gildandi aðalskipulags.:
3.6.2. FRÍSTUNDABYGGÐ Í DREIFBÝLINU
Hestur í Hestfirði
Frístundahús.
Tillaga að breytingu
Hestur í Hestfirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði um 77 ha að stærð fyrir 10-15 frístunda-
hús. Fyrirhugað svæði nær upp í 200 m.y.s
GREINARGERÐ: Vegna ásóknar í frístundalóðir í sveitarfélaginu er gert ráð fyrir frístundabyggð í landi Hests. Áformin eru í góðu samræmi við markmið sveitarstjórnar í Aðalskipulagi Súðavíkurhrepps 1999-2018 um atvinnumál, þróun byggðar og landnotkun.
Áður en deiliskipulag verður unnið skal hafa samráð við Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands um staðbundið hættumat svo og við Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða um fornleifakönnun. Haft skal samráð við Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða um útfærslu frárennslis- og úrgangsmála svo og um öflun neysluvatns og frágang vatnsveitu.
3. Hlíð í Álftafirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði um 121 ha stækkar um 15 ha (130 m) til norðurs í átt að Langeyri.
Greinargerð gildandi aðalskipulags.:
3.6.2. FRÍSTUNDABYGGÐ Í DREIFBÝLINU
Hlíð í Álftafirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði um 121 ha. (leiðrétt stærð: Um 65 ha)
Tillaga að breytingu
Hlíð í Álftafirði
Frístundabyggð og skógræktarsvæði um 80 ha. Stækkun til norðurs. Suður- þéttbýlismörk Súðavíkur færast til norðurs sem því nemur.
Sjá skipulagsuppdrátt hér.



