Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 652, 4. júlí 2014
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Súðavíkurhrepp
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna sbr. auglýsingu nr. 193/2015 í Stjórnartíðindum
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2015.
Fiskistofa, 27. febrúar 2015.