Inndjúpsdagurinn, laugardaginn 4. ágúst nk.
Laugardaginn 4 ágúst nk. verður Inndjúpsdagurinn haldinn í annað skipti í Vatnsfirði og Heydal.
Um er að ræða einstaka fjölskylduhátíð með miðaldaívafi. Í Heydal verður lögð sérstök áhersla á Björn Jórsalafara ( 1350 - 1415) sem bjó í Vatnsfirði. Þar mun Elvar Logi Hannesson flytja frumsaminn leikþátt um Björn.
Ása Grímsdóttir mun greina frá bók sinni um sögu Vatnsfjarðar. Kenndir verða dansar frá miðöldum undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur. Börnum og unglingum er boðið að taka þátt í miðaldaleikjum og fara í stuttar hestaferðir gegn vægu gjaldi.
DAGSKRÁ:
1. Skipulögð leiðsögn í vatnsfirði kl. 13:00 og 15:00 (ókeypis leiðsögn).
2. Leikþáttur um BJörn Jórsalafara kl. 17:00. (kr. 1.500 - frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
3. Matseðill með miðaldaívafi- hlaðborð frá kl. 19:00 - 22:00. (kr. 3.000 - 1.200 fyrir börn 6 - 12 ára)
4. Miðaldadansar, söngur o.fl. frá kl.þ 22:30 í Heydal. (kr. 1.000)
- Hvar?
Heydalur, Vatnsfjörður - Hvenær?
4. ágúst - Klukkan?
13:00 til 22:30



