Samráðsfundur vegna byggðakvóta
197 þorskígildistonnum hefur verið úthlutað til Súðavíkur
fiskveiðiárið 2011/2012.
Samráðsfundur á veitingastaðnum Jóni Indíafara, nk. laugardag 28. janúar nk. kl. 14:00.
Súðavík hefur verið úthlutað 197 þorskígildistonnum á fiskveiðiárinu 2011-2012 og er það aukning frá fiskveiðiárinu á undan um 47 tonn. Súðavík hefur verið úthlutaður byggðakvóti árlega frá árinu 2003 og ekki er annað að sjá en að þannig verði það áfram.
Byggðalög sem lent hafa í vanda vegna fækkunar á störfum við fiskvinnslu eiga rétt á úthlutun byggðakvóta. Er það síðan í verkahring sveitarfélags og atvinnulífs að búa þannig um hnútanna að úthlutunin nýtist sem best fyrir íbúanna, viðhaldi þeim störfum sem til staðar eru og búi til ný störf.
Laugardaginn 28. janúar nk. á veitingastaðnum Jóni Indíafara kl. 14:00 verður varpað fram þeirri spurningu um hvort, áhugi, vilji og geta sé fyrir því að tryggja að til staðar verði bátur/ skip sem geri út frá Súðavík allt árið um kring og útvegi hráefni til vinnslu í Súðavík. Það skip mundi eiga möguleika á nýta úthlutaðan byggðakvóta.
Þeir eru sérstaklega hvattir til að mæta sem eru tengdir sjávarútvegi, er umhugað um atvinnumál í byggðinni og eru búsettir í sveitarfélaginu eða með sterkar tengingar til Súðavíkur.
Í framhaldi af fundinum er stefnt að því að einhverjir fundargesta myndi með sér starfshóp sem skoði möguleika þess að láta ofangreint verða að veruleika og ef forsendur eru fyrir ofangreindu að leita þá eftir stuðningi sveitarfélagsins um að beita sér fyrir því að viðkomandi báti / skipi yrði tryggt aðgengi að úthlutuðum byggðakvóta til Súðavíkur.
Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps,
Ómar Már Jónsson
- Hvar?
Veitingastaðurinn Jón Indíafari - Hvenær?
28. janúar - Klukkan?
14:00 til 16:00



