Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Skrá atburð
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Eyradalur 2.
Eyradalur 2.

Atburðir

gaggað á sunnudag

Kómedíuleikhúsið sýnir hið gaggandi vinsæla leikverk Gaggð í grjótinu í Melrakkasetrinu í Súðavík á sunnudag kl.17. Miðaverð aðeins 1.500.-kr Í Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað? Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands. Melrakkasýningin er opin, leikhústilboð: melrakkasýning og leikrit = 2000kr heitt á könnunni, rebbakaka og nýjar vöfflur !!

Fundur um sorg og sorgarviðbrögð í Ísafjarðarkirkju nk. mánudag.

Næstkomandi mánudag, þann 20. september klukkan 20:00 verður haldinn í Ísafjarðarkirkju fundur á vegum samtaka um sorg og sorgarviðbrögð á norðanverðum Vestfjörðum. Séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur í Reykjavík mun halda erindi og kynna málefnið. Sigfinnur er manna fróðastur á þessu sviði. Ætlar hann einnig að segja okkur frá ýmsum kostum hvað varðar form og fyrirkomulag á starfinu. Ætlunin er að þessi fundur verði upphaf að starfi í vetur á sviði sorgar og sorgarviðbragða. Þeir sem hafa reynt ástvinamissi eru hvattir til að mæta á fundinn. Þar að auki eru allir hjartanlega velkomnir. Stjórnin

Afmælisdagskrá í Melrakkasetrinu

* Opið hús - frítt á sýningun Melrakkasetursins kl. 13-16 * Gaggað í grjótinu kl. 17 - aðgangseyrir 1500kr. * Trúbadorinn Skúli Mennski kl. 20 - aðgangseyrir 500kr. Kaffihúsið opið, heitt á könnunni og öl í kælinum Velkomin í Eyrardal !!

Tólf spora hópur í Friðarsetrinu Holti Önundarfirði

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á Tólf spora hópastarf í friðarsetrinu í Holti í Önundarfirði í vetur. Fundirnir eru á fimmtudagskvöldum k. 20-22. Fyrsti kynningarfundur verður í friðarsetrinu fimmtudagskvöldið 9. september kl. 20:00, þar sem kynnt verður hvernig unnið er í Tólf sporunum eftir bókinni Tólf sporin – andlegt ferðalag og getur fólk þá áttað sig á því hvort þessi vinna hentar því og hvort það er tílbúið til að fara í þetta ferðalag. Unnið er í litlum hópum þannig að lesið er efni heima og spurningum svarað og niðurstöðunum er svo deilt með hópnum. Í hverjum hópi eru mest 6 manns. Lögð er áhersla á nafnleynd og trúnað. Enginn þarf að skilgreina sig fyrirfram, þ.e. enginn þarf að hafa skilgreind vandamál, fíkn eða slíkt heldur aðeins að langa til að auka lífsgæði sín á félagslega og tilfinningalega sviðinu. Nánari upplýsingar má fá hjá Laufeyju s. 899-4926 eða Hólmgeiri s. 892-1058, eða á vefsíðunni www.viniribata.is.
Fundargerdir

Meira
Vefumsjón