Tólf spora hópur í Friðarsetrinu Holti Önundarfirði
Eins og undanfarin ár verður boðið upp á Tólf spora hópastarf í friðarsetrinu í Holti í Önundarfirði í vetur. Fundirnir eru á fimmtudagskvöldum k. 20-22.
Fyrsti kynningarfundur verður í friðarsetrinu fimmtudagskvöldið 9. september kl. 20:00, þar sem kynnt verður hvernig unnið er í Tólf sporunum eftir bókinni Tólf sporin – andlegt ferðalag og getur fólk þá áttað sig á því hvort þessi vinna hentar því og hvort það er tílbúið til að fara í þetta ferðalag.
Unnið er í litlum hópum þannig að lesið er efni heima og spurningum svarað og niðurstöðunum er svo deilt með hópnum. Í hverjum hópi eru mest 6 manns. Lögð er áhersla á nafnleynd og trúnað. Enginn þarf að skilgreina sig fyrirfram, þ.e. enginn þarf að hafa skilgreind vandamál, fíkn eða slíkt heldur aðeins að langa til að auka lífsgæði sín á félagslega og tilfinningalega sviðinu.
Nánari upplýsingar má fá hjá Laufeyju s. 899-4926 eða Hólmgeiri s. 892-1058, eða á vefsíðunni www.viniribata.is.
- Hvar?
Friðarsetrið Holt Önundarfirði - Hvenær?
9. september - Klukkan?
20:00 til 22:00



